Niđurlag.
22. október 2007 klukkan 14:44
Ákveðið hefur verið á húsfundi á Saxogade 88 1.tv. að leggja niður síðu þessa sökum breytinga á húshaldi og íbúatölu. Íbúar hafa tvístrast og samþykkt mun hafa verið með atkvæðum allra sem að komu, að óviðeigandi sé að rita frekar á vef þennan.
Starfslokakveðja,
Andri og Lísa.
Heimţrá farin ađ segja til sín
06. október 2007 klukkan 19:05
Það er ekkert smá gott að hafa Bob Saget í TV-inu 24/7 þegar maður er með svona mikla heimþrá!

Og sérstklega þegar maður saknar þessarar skvísu svona mikiði

Restin af myndunum af íbúđinni
04. október 2007 klukkan 17:53
Æjj ok við nennum ekki að setja inn myndir fleiri myndir á þessa síðu það tekur svo langan tíma !
En þið getið skoðað þær á myndasíðunni okkar http://public.fotki.com/andrioglisa/

Myndablogg
02. október 2007 klukkan 16:15
Við skelltum okkur, ásamt Maju, í Tivoli á tónleika með Nephew þeir voru ýkt góðir og komu okkur mjög á óvart. Áður en tónleikarnir byrjuðu fórum við á veitingastað og fær hann ekki háa einkunn, Lísa lenti í því að fá vitlausa pönntun og helt var niður á Maju :)

Maja fékk sér Spare Ribs
Nephew

Svo um helgina fórum við til Hobro, Andri var að spila með Nefndinni í afmæli og fengu konurnar að koma með, á myndinni eru strákarnir að fá sér Sushi.

Hafþóri fannst Sushiið ekki gott
Við fórum svo loksins í það að taka myndir af íbúiðnni

Eldhúsborðið

stofan

Stofan
Það koma svo fleiri myndir seinna af íbúðinni..nennum ekki að setja fleiri myndir inn í bili..þetta tekur svo langan tíma !
Svo var Lísa að eignast lítinn frænda á Laugardaginn :) Kamilla á eftir að taka sig vel út sem stóra systir! ekki spurning :) svo vitum við líka svoldið annað en við höldum að það sé kannski ennþá pínu leyndó ennþá..þannig að við segjum kannski frá því seinna:)
Jæja koss og knús frá okkur..

Hátíđarhöld í Kuben
14. september 2007 klukkan 07:55
Lag dagsins er Birthday með Bítlunum
Einnig fær ástkær faðir, tengdafaðir, skólastjóri og skipsstjóri, Þórhallur Þorvaldsson bestu kveðjur en hann átti afmæli í fyrradag eins og komið hefur fram.
Annars er ekki alveg komið á hreint hvernig dagurinn í dag verður, kl er bara 9:45 að staðartíma þannig að ekkert plan er ennþá komið annað en það að líklegt verður að teljast að húsbóndinn og afmælisbarnið á Saxogade fái sér 1-2 görótta drykki í tilefni dagsins.
24 ára. 24 er merkileg tala, búnir hafa verið til sjónvarpsþættir sem heita 24, í sólarhring eru 24 tímar, sólstrandargæjarnir sungu 24 24 over and out yeah.. (eða eins og Lísa syngur það 24 24 og ég er ennþá hér)
En nú verður hér látið staðar numið í skrifum og bulli og sest að öldrykkju að dönskum sið, það fréttist einmitt í síðustu viku að á árum áður þegar mikill vatnsskortur var í Kuben þá fengu hermenn drottningar 10 lítra af öli á dag til að svala þorstanum. Ekki finnst mönnum þá virkilega skrýtið að danir hafi tapað nánast öllum stríðum sem þeir hafa komið nálægt.
Jæja nú verður ekki sagt meira svo landvistarleyfið haldist áfram.
Peace out!
Eins gott mađur!
06. september 2007 klukkan 14:56
Eins gott að ég hélt bara með Fjarðabyggð í sumar því annars hefði ég farið í ofur pirrings-fýlu í gær ! svekkjandi maður !
En ég er alveg að fýla mig hérna í Köben. Lífið gæti ekki verið betra! eða jú ef Kamilla mín sem ég sakna voða voða mikið væri hérna líka. Það er mjög skrítið að fá ekki allavega eitt Kamillu-knús á hverjum degi. Og heyra hana segja "nei bara djók" sem er bara fyndnast í heimi
Það er margt búið að gerast síðan ég skrifaði seinustu færslu, ég eignaðist litinn frænda 25. águst Hjötti og Habba eignuðust litinn prins, Ég byrjaði í skólanum, hann er bara frábær og þetta er rosa gaman ég er alveg að finna mig í þessu. ég er reyndar eini "útlendingurinn" í bekknum ég er bara með dönum í bekk..en það er fínt þá kemur kemur danskan fyrr hjá mér ! fyrsti klukkutiminn á morgnanna er erfiðastur en svo skil ég næstum allt :)
Alexandra og Höddi komu í heimsókn og það var bara fjör hjá okkur. Við kíktum auðvitað á strikið og eyddum smá, fórum svo á leik í meistaradeildinni.. F.C. Köben vs. Benfica. Ég, Andri og Logi tókum áfangann hvernig-á-að vefja-hass-103 í hálfleik. Synd að hann sé ekki kenndur í menntaskólanum! Gaurarnir sem voru að fá sér smá að reykja voru alveg brjálaðir í fyrrihálfleik, oskruðu og sungu eins og vitleysingar. En þeir sögðu ekki orð í seinni hálfleik, heldur stóðu bara og brostu og allt var frábært! ég er ekki frá því að ég hafi orðið aðeins fyrir reyknum því mér varð allt í einu mjög óglatt og leið ekkert rosalega vel :) hehe
á fimmtudeginum fórum við svo í nettan túristaleik, fórum og skoðuðum Amalienborg, við vorum held ég eina fólkið sem voru ekki með skáeigð augu!
svo dryfum við okkur í Tvoli! byrjuðum á stóra russibananum og þræddum svo öll tækin ! verð samt að segja að Eingisprettan sem var hrikalegust !Dí maður þetta var ekki svona svakalegt í minningunni ! Held að þetta hafi ekki verið svona hrikalegt þegar ég fór til DK með bekknum fyrir 5 árum síðan!
Andri segir ykkur kannski betur frá Tivolinu.
Hilsen Lotte!

Skólaball
01. september 2007 klukkan 15:07
Jæja, Lísa er búin að vera eitthvað löt í blogginu undanfarið, þannig að Andri verður að segja eitthvað. Við erum reyndar búin að gera ýmislegt frá því í síðasta bloggi t.d. farið á meistaradeildarleik á Parken, FCK og Benfica, farið í afmælispartý hjá skólanum hans Andra og síðan bara svona almennt túristast svolítið tívolí og fengum gesti og allt að gerast.
Þetta byrjaði allt á fimmtudaginn í síðustu viku þegar við kíktum á afmælistónleika og partý í skólanum hans Andra, Lísa var eitthvað sein fyrir eins og kemur stundum fyrir.. :-) og hafði ekki heldur lyst á dýrindis pulsuréttinum sem Andri eldaði, þannig að hún fór þangað án þess að borða nokkuð, sem reyndist mjög afdrifaríkt. Lísa var farin að finna vel á sér strax eftir fyrsta kampavínsglasið, þar á eftir fylgdu 1-2 hvítvínsglös og kannski einn bjór, þannig að þegar klukkan var u.þ.b. 1 eftir miðnætti áttaði Andri sig allt í einu á því að frökenin var hvergi nærri og hann ekki búinn að sjá hana í smá tíma. Hann rölti um húsið og leitaði alveg þangað til að ein stelpa kom til hans og sagði að hann ætti að koma og kíkja aðeins á kærustuna sína. Andri elti stelpuna inná kvennaklósettið og viti menn þar var Lísa inni á einu klósettinu, sitjandi á gólfinu með lappirnar vafðar utan um klóið og hausinn ofan í skálinni. Andri reyndi að segja einhver hughreystandi orð og strjúka konunni en fékk bara, "æ, farðu út ég er alveg að koma.." til baka. Hann lét ekki segja sér þetta oftar en tvisvar og skellti sér fram á dansgólfið. Um það bil 2 tímum síðar eða um kl 3 áttaði hann sig á því að Lísa var ekki ennþá komin fram þannig að Andri fór nú til að tékka á konunni. Þarna var hún enn blessunin eins og hlekkjuð við klóið í nákvæmlega sömu stellingu og 2 tímum áður. Þannig að það var ekket annað að gera í stöðunni en að lyfta henni varlega frá gólfinu og með miklum klókindum lauma henni í leigubíl og koma henni heim án þess að hún varla tæki eftir því að hún væri komin af klósettinu. En þetta gekk nú allt vel og Lísa er strax farin að hlakka til að komast í annað skólapartý með Andra.
Skrifa seinna um meistaradeildina og ferðina í tívolí.
Later..
FC Křbenhavn vs. Midt Jylland
20. ágúst 2007 klukkan 21:20
Við skelltum okkur á Parken á fótbolta leik í gær í þeirri von um að sjá betri fótbolta en var í boði í sjónvarpinu (Man Utd. - Man City). Við fjárfestum auðvitað í búning og erum nú orðnir miklir aðdáendur F.C.K. Lísa er samt ennþá óviss um hvort hún muni flytja sig yfir til Brøndby! hún hefur verið mikill aðdáandi síðan í æsku eða síðan hún og Lísa Leifs voru að tippa í gamla daga.
Við höfðum líka ákveðið að hafa "túristadag" á hverjum sunnudegi en komumst svo fljótt að því að það myndi ekki ganga því að F.C.K. spilar alltaf á sunnudögum og höfum því ekki enn ákveðið okkur hvaða dag skuli vera "túrista dagar"
Annars er helgin bara búin að vera róleg hjá okkur. Andri klikkaði á að ná í Lísu á flugvöllinn, jebb! hann náði að taka vitlausa lest svo að Lísa tók leigubíl alein heim (þetta getur hún!).
Á laugardaginn fórum við svo í IKEA, Andra til mikillar gleði, og eyddum við þar alltof miklum peningum! nokkrir þúsundkallar fengu að fjúka!
Við höfum heldur ekki borðað mikið hérna og í dag var ekkert til í ískápnum nema smurostur og bjór og þar sem það var það eina sem var til ætilegt eða drykkjanlegt varð Lísa var frekar létt á því í þrifunum (djók mamma og pabbi) í dag á meðan Andri var í skólanum hún þorði nefninlega ekki ein útúr húsi .
Á laugardagskvöld buðu svo Addi og Dóra okkur út að borða á gamaldags þýsku veitingahúsi og svo kíktum við með þeim í Tivoli.
Svo núna vorum við að koma úr dýrindis máltíð af Rønnegade þar sem húsfrúin á heimilinu eldaði ásamt Andra fahitas glóðarsteiktar pönnukökur.
Godt Tub´år
AogE

ÓMĆ!
16. ágúst 2007 klukkan 14:08
Þetta er að bresta á! Mér finnst samt eins og ég sé bara að fara í heimsókn út! Ekki alveg að fatta þetta.
En á morgun verð ég loksins komin til Andra míns ó hvað ég hlakka til ! Er reyndar að kafna úr ferðatöskum hérna heima og ein 35 kg taska tók sig til áðan og sprakk! jebb..rennilásinn í tætlur eða rétt svo..
En guð minn góður ég fór til tannlæknis í dag og sjitt hvað ég þurfti að borga mikið ! hef aldrei fengið skemmd eða neitt en svo létu tvær sjá sig núna í sumar..enda ekki búin að fara til tannlæknis síðan 2004. Ég fékk áfall þegar ég sá hvað stóð á miðanum 42.000 kall takk fyrir !
Það lá við að ég þyrfti á áfallahjálp að halda!
Jæja sjáumst bara í köben þið sem ætlið að heimsækja okkur:)
Elísabet